Erlen Isabella er leikkona fædd 2005. Hún hefur undanfarin ár verið að byggja sér feril í leiklistinni bæði á sviði og í sjónvarpi. Hún komst inn í ævintýraheim leiklistarinnar 8 ára gömul þegar hún fékk hlutverk langömmunnar í Óvitum, sem sýndir voru í Þjóðleikhússins árið 2013-2014. En síðan þá hefur hún tekið þátt í mörgum leiksýningum, þar má nefna Blái Hnötturinn, Borgarleikhúsið (2016 – 2018), 1984, Borgarleikhúsið (2017), Matthildur, Borgarleikhúsið (2019 – 2020), Helgi Þór rofnar, Borgarleikhúsið (2020), Mamma klikk, Gaflaraleikhúsið (2020 –2021).
Erlen var kynnir og skemmtikraftur með snillingnum Björgvini Franz á afmælishátíð BHM árið 2018 sem haldin var í Borgarleikhúsinu. Hún hefur einnig verið að leika í sjónvarpsefni fyrir krakkarúv, ásamt því að leika í auglýsingum og tala inn á teiknimyndir. Erlen Isabella hlaut verðlaunin sjónvarpsstjarna ársins árið 2019 á Sögum verðlaunahátíð barnanna.
Aðalskoðun (Auglýsing) 2017, Vís (Auglýsing) 2017, Nettó (Auglýsing) 2017, Nissan X-trail (Auglýsing) 2017, Jóladagtalið Snæholt (talsetning) 2017, Dagur Diðrik (talsetning) 2017, Mæja býfluga (talsetning) 2017, Jólastundinn Okkar (Rúv) 2016,2017,2018,2019, Út í umferðinni (Rúv) 2018, Stundin Okkar (Rúv), Þáttarstjórnandi 2019 -2020
Það er sjaldan lognmolla í kringum Erlen en hún syngur og dansar öllum stundum en passar auðvitað alltaf upp á “swagið”. Hún keppti erlendis á Dance World Cup í “song and dans” árið 2019 og tók fjórða sætið, á mótinu tók hún einnig þátt í street dance battle og komst í undanúrslit. Erlen hefur æft “street” dans frá árinu 2012 og “theatre” dans frá árinu 2016 ásamt því að vera í “break” dans hópnum Element crew. Það má segja að stuðið búi í hjarta hennar og svo fær hún sér líka alltaf smá húmor ofan á brauð.