Ari Ísfeld útskrifaðist árið 2019 af leikarabraut í Royal Central School of Speech and Drama í London en þar lagði hann áherslu á samsköpun- og spunasýningar. Hann hefur unnið með þekktum leikhópum á borð við Complicite og Filter Theatre við gerð sýninga.
Ari hefur kennt spuna í nokkrum menntaskólum og grunnskólum á Íslandi. Einnig hefur hann talsett ógrynni af efni bæði á Íslandi og í London en það má t.d. heyra í honum sem Múmínsnáða á RÚV og sem Tarben í nýjasta Assasins Creed tölvuleiknum. Haustið 2020 skrifaði hann og leikstýrði barnasýningunni Lalli og töframaðurinn í Tjarnarbíó. Ari mun taka þátt í Umbúðarlaust-verkefni Borgarleikhússins á leikárinu 2021-2022 með verkið How To Make Love To A Man.