Arndís Hrönn Egilsdóttir

Arndís Hrönn lærði leiklist og leikhúsfræði í París. Hún hefur starfað sem leikkona á sviði, í sjónvarpi, í útvarpi og kvikmyndum og er ein af forsvarsmanneskjum leikhópsins Sokkabandið. Meðal sýninga sem Arndís hefur leikið í má nefna Samþykki eftir Ninu Raine og Engilinn sem er byggð á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar í Þjóðleikhúsinu, Lóaboratoríum eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur,  Bláskjá eftir Tyrfing Tyrfingsson, Dúkkuheimilið eftir Henrik Ibsen og Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur í Borgarleikhúsinu. Í Hafnarfjarðarleikhúsinu lék hún m.a. í Gunnlaðarsögu og Mindcamp.

Arndís lék nýverið aðalhlutverkið í nýjustu mynd Gríms Hákonarsonar Héraðinu, Arndís leikur í Ölmu, nýjustu mynd Kristínar Jóhannesdóttur, sem nú er í eftirvinnslu. Hún lék í sjónvarpsþáttaröðunum Brot, Föngum og Pressu og í kvikmyndinni Þröstum. Nú á dögunum var Arndís að klára tökur í kvikmyndinni Síðasti saumaklúbburinn sem verður frumsýnd á næstu misserum en þar leikur hún eitt af aðalhlutverkunum.

Arndís fékkst við dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið Rás 1 um árabil. Hún var meðal annars umsjónarmaður Víðsjár og hefur gert fjölmarga menningarþætti.

Arndís var tilnefnd til Grímunnar fyrir leik sinn í Englinum, Hystory og Gunnlaðarsögu. Hún er nú tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn í Héraðinu en var áður tilnefnd fyrir leik sinni í sjónvarpsþáttaröðinni Pressu og kvikmyndinni Þröstum.