Elma Lísa Gunnarsdóttir er fædd í vesturbæ Reykjavíkur. Frá unga aldri æfði Elma Lísa jassballet og tók þátt í Íslandsmeistarakeppninni í frjálsum dönsum, Frístæl. Þar tók hún heim fjöldann allan af verðlaunum. Frá barnsaldri fram á fullorðins ár starfaði Elma Lísa sem fyrirsæta bæði hérlendis sem erlendis. Lengst af í París og Milanó á Ítalíu. Eftir útskrift úr Listaháskóla Íslands sem leikkona hefur Elma Lísa leikið jafnt í leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi.
Nýlega lék Elma Lísa aðalhlutverkið í kvikmyndinni Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttur. Tryggð er byggð á bók Auðar Jónsdóttur Tryggðarpantur. Elma Lísa lék nokkur eftirminnileg hlutverk í Áramótaskaupinu 2019.
Elma Lísa hlaut Eddu verðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Rokland eftir Martein Þórisson. Hún hlaut tilnefningu til Eddu verðlauna fyrir leik sinn í kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Eldfjall sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Elma hefur tekið að sér mörg hlutverk í kvikmyndum þar á meðal eru Mýrin efir Baltasar Kormák, Blóðbönd eftir Árna Ólaf Ásgeirsson, Okkar eigin Osló og Frost eftir Reyni Lyngdal og Dís eftir Silju Hauksdóttur. Elma Lísa hefur einnig leikið í fjöldanum öllum af leiknum sjónvarpsþáttum þar á meðal eru Hamarinn, Stelpurnar, Ríkið, þýsku þáttunum Der Tote im Westfjord. Elma Lísa hefur verið tíður gestur í Áramótaskaupum síðari ára.
Elma Lísa er ein af stofnendum leikfélagsins Sokkabandið. Sokkabandið hefur verið brautryðjandi í að stuðla að íslenskri leikritun ásamt því að fjalla um reynsluheim kvenna í uppsetningum sínum.