Rebecca Scott og Hekla Elísabet

Rebecca Scott Lord er fædd í Bandaríkjunum og búsett á Íslandi síðan 2016. Rebecca er uppistandari, handritshöfundur, rithöfundur og skemmtikraftur. Hún lauk BA gráðu í myndlist í Baltimore árið 2014 og MFA í sviðslistum í LHÍ árið 2018. 
Rebecca er í uppistandshópnum Fyndnustu mínar og hefur síðustu ár unnið fjölbreytt verkefni, þ.á.m. sýninguna DJ Daddy Issues og karókí-þerapíu. Hún hefur einnig gefið út erótíska smásögbók, sem ber nafnið Drenched Dreams. Uppistand Rebeccu fær fólk til að hlæja og gráta og tengja. Hún snertir á persónulegum reynslusögum og upplifun sinni á íslenskri menningu sem útlendingur (það er þó ekkert minnst á verðið á bjórnum).

Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir er uppistandari, handritshöfundur, sviðshöfundur og leikstjóri. Hún lauk BA gráðu frá sviðshöfundabraut LHÍ árið 2016.
Hekla hefur komið fram með uppistandshópnum Fyndnustu Mínar frá árinu 2019, en hópurinn hefur staðið að fjölda sýninga í Þjóðleikhúskjallaranum, Tjarnarbíói og Borgarleikhúsinu. Þá var nýjasta sýning Fyndnustu minna hluti af verkefninu Umbúðalaust hjá Borgarleikhúsinu, sem hlaut Grímuverðlaun fyrir Sprota ársins það árið.
Hekla var einn höfunda sjónvarpsseríunnar Jarðarförin mín sem sýnd var í Sjónvarpi Símans vorið 2020, sem og framhaldsseríunnar Brúðkaupið mitt sem kom út árið 2022 og hlaut tilnefningu til Edduverðlauna í flokknum leikið sjónvarpsefni ársins. Árið 2020 leikstýrði Hekla gamanleikritinu Fullorðin hjá Leikfélagi Akureyrar ásamt Mörtu Nordal, sýningu sem gekk fyrir fullu húsi í tvö ár og var síðar sett upp og sýnd í Þjóðleikhússkjallaranum veturinn 2022-2023. Í uppistandi sínu fjallar Hekla helst um málefni líðandi stundar, pólitík, poppkúltúr, sambönd og vináttu kvenna, svo eitthvað sé nefnt. 

Upplýsingar og bókanir á bokanir@modurskipid.is