Kristín Pétursdóttir

Kristín er fædd árið 1992 og býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Hennar fyrsta verkefni sem leikkona var hlutverk í myndinni Óróa (2010) og hafði þá leikið í ýmsum verkum í menntaskóla og hjá áhugaleikfélögum. 

Kristín útskrifaðist af leikarabraut frá  Listaháskóla Íslands árið 2015. Á meðan á náminu stóð lék hún aðalhlutverk í þáttunum Fólkinu í blokkinni fyrir RÚV (2013) og í Áramótaskaupinu árið eftir. Hún hefur þar að auki verið rödd Coka Cola á Íslandi síðan árið 2016 og leikið í ýmsum auglýsingum. Hennar síðasta verkefni var danska leikritið Mæður sem sýnt var í Iðnó í febrúar sl. og hlaut einróma lof gagnrýnenda. 

Kristín heldur auk þess úti stórum samfélagsmiðlareikningi á Instagram þar sem hún er með tæpa 14 þúsund fylgjendur og hefur nýtt sér það sem starfsvettvang bæði í gríni og auglýsingum.