María Ellingsen

María getur sérsniðið fyrirlestur eða stutt námskeið fyrir þinn hóp þar sem hægt er að flétta inní skemmtilegum æfingum og leikjum til að hrista saman hópa. Fyrirlestra og örnámskeið er hægt að nota sem innblástur eða krydd á ráðstefnum, starfsdögum, fræðslukvöldum og samkomum.

Upplýsingar og bókanir á bokanir@modurskipid.is

Hvernig lifir maður af Kokteilboð?

Kokteilboð eru algeng í tengslum við vinnu, ráðstefnur og viðburði. En hversu skemmtilegt er þau? „Leiðindakvöð „segja sumir. „Kvíðvænlegt „segja aðrir. “Við hvern á maður að tala…og um hvað, og hvað með óþægilegu þagnirnar?

María Ellingsen leikkona flytur skemmtilegan fyrirlestur með leikjum, um hvernig snúa má þessum samkomum upp í frábært tækifæri til að slá í gegn, kynnast nýju fólki og skapa dýrmæt tengsl.

Ráðstefnu, funda- og veislustjórn

Öflug ráðstefnu og fundarstjórn setur tóninn og skapar heildarsvip á viðburðinn. María hefur gríðarlega reynslu í bæði að halda utan um dagskrá og getur tekið þátt í að skipuleggja hana frá grunni. Þá er hún glæsilegur veislustjóri.