Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Unnur Elísabet hefur starfað í leikhúsi frá tíu ára aldri og er því með yfirgripsmikla reynslu sem sviðslistakona. Unnur Elísabet er fjöllistakona sem leikur, syngur, dansar, skrifar og semur tónlist. Hún hefur unnið í fjölda verkefna með Íslenska dansflokknum og Leikfélagi Reykjavíkur, bæði sem dansari, leikari og danshöfundur síðan hún útskrifaðist frá konunglega sænska ballettskólanum árið 2003. Síðastliðin ár hefur aðaláhersla hennar verið á leikstjórn, performance og að skapa eigin frumsamin verk frá grunni. Í mars 2025 mun hún frumsýna nýjan söngleik sem ber nafnið Skíthrædd. 

Unnur útskrifaðist með mastersgráðu í leiklist með áherslu á leikstjórn og skapandi skrif árið 2020 frá Institue of Arts Barcelona. Eftir það leikstýrði hún t.d. söngvakeppninni á RÚV, Idol keppninni og leiksýningunni „Them“ með leikhópnum Spindrift sem hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Einnig skrifaði hún sýninguna ,,Release” og ferðaðist  með hana víða um heiminn. 

Unnur hefur einnig leikstýrt leiksýningum Verslunaskóla Íslands og fjölda tónlistarmyndbanda.

 Unnur hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir sín störf. Þar má nefna Grímuna fyrir dans og sviðshreyfingar fyrir Deleríum Búbónis ,Grímutilnefningar sem Sproti ársins, fyrir sviðshreyfingar og sem danshöfundur ársins. Einnig fékk ÉG BÝÐ MIG FRAM: SERÍA 2 titilinn sem besta sýningin á Reykjavík Fringe árið 2019.

Unnur Elísabet er með yfirgripsmikla reynslu sem sviðslistakona og handritshöfundur og hefur komið víða við, bæði í leikhúsi og sjónvarpi.  Hún hefur stjórnað stórum listrænum verkefnum og skrifað fjölda verka. Unnur útskrifaðist frá Institute of arts Barcelona árið 2020 með Mastersgráðu í leiklist með áherslu á skapandi skrif og leikstjórn. Nýlegustu verk hennar sem handritshöfundur eru ,,Skíthrædd” frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum 2025, ,,Release” skrifað í samstarfi með Sally Cowdin, sýnt í Reykjavík, London og Edinborg 2024, ,,Nýr heimur” skrifað í samstarfi með leikhóp, frumsýnt í Tjarnarbíói 2022, ,,Them” í samstarfi með Spindrift Theatre, frumsýnt 2021 í Tjarnarbíó og ,,Á milli stunda” frumsýnt 2020. 

“Mér finnst ekkert skemmtilegra en að ögra sjálfri mér og gera nýja hluti innan listarinnar. Ég get orðið leið á því að gera alltaf það sama.”

“Ég hef svifið í háloftunum, ég hef gefið út tvö lög, ég hef leikstýrt stórum sýningum/verkefnum, ég hef dansað á allskonar sviðum út um allan heim, ég hef málað Trump með túrtöppum, ég hef tattúerað bakið á Almari Atlasyni fyrir framan áhorfendur, ég hef samið fjölda verka, ég er að skrifa nokkur handrit as we speak, ég tala sænsku, ég er með leikaramenntun frá Institute of arts Barcelona, ég er með dansaramenntun frá Konunglega sænska ballettskólanum, ég hef sýnt sirkúsverk, ég hef leikstýrt söngleikjum, ég hef unnið með listamönnum úr öllum áttum, ég hef leikstýrt mörgum tónlistarvideoum, ég hef dansað á tómum keflavíkurflugvelli og á tómri flugbraut í Covid, ég hef fengið súrefnisskort á sviði og þá urðu puttar, tær og varir dökkbláar, ég var valin næstbesti dansari Svíþjóðar 18 ára gömul, ég elska fátt heitar en að gleyma mér í góðri tónlist, ég byrjaði að vinna í leikhúsi 10 ára gömul, ég hef dansað sóló fyrir konungshjónin í Svíþjóð til heiðurs Keith Jarrets og ég hef borðað mikið af einstaklega góðu súkkulaði.”