Pétur Óskar

Pétur Óskar útskrifaðist frá leiklistardeild Cours Florent í París vorið 2014.

Pétur talar þýsku reiprennandi og fer hann reglulega til Berlínar í verkefni þar. Einnig talar hann frönsku reiprennandi og fer sömuleiðis í sömu erindagjörðum til Frakklands nokkrum sinnum á ári. Pétur hefur leikið í nokkrum frönskum kvikmyndum sem og fjölda leikrita. Pétur bjó lengi í Boston og talar því mjög góða ensku sem og lúxembúrgísku.

Árið 2015 lá leiðin til Íslands þar sem Pétur lék eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Grimmd. Einnig lék hann í Andið Eðlilega, Capitani(lúxembúrgísk Netflix sería sem hlaut mikið lof). Hvað þekktastur er Pétur fyrir leik sinn sem Tryggvi lögreglumaður í Ófærð 2. Nú síðast lék hann aðalhlutverkið í einum vinsælasta sjónvarpsþætti Þýskalands, Tatort sem og Hagen, þýskri bíómynd og sjónvarpsseríu. Einnig lék hann í leikritinu Polishing Iceland, í leikstjórn Pálínu Jónsdóttur, sem hluti af Reykjavík International Ensemble í Shakespeare leikhúsinu í Gdansk, Póllandi.

Pétur hefur einnig leikið í fjölda alþjóðlegra auglýsinga fyrir þekkt merki eins og Levi’s og Swarovski ásamt fjöld innlendra auglýsinga eins og Smáralind og Sjóvá.

Pétur er ekki við eina fjölina felldur og gengur undir nafninu Oscar Leone þegar kemur að tónlist. Tónlist hans mætti líkja við Arcade Fire og Edward Sharpe; hugljúf gítartónlist til að grilla við. Einskonar indie-rock með folk/country ívafi.  Pétur hefur gefið út 5 lög sem öll hafa skorað hátt á hverskyns vinsældarlistum og setið þar í margar vikur í röð ásamt því að fá miklar spilanir í útvarpi. Fyrir myndband sitt við fyrsta lagið sitt Superstar var hann tilfnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna sem er sjaldgæft miðað við fyrsta lag og árið eftir var hann tilnefndur í sama flokki fyrir lagið „Take the Seasons“